Færsluflokkur: Bloggar
21.1.2008 | 09:15
Það hefði nú mátt orða þetta öðruvísi.
Ég hélt að það væru þeir sem eru jarðsettir í kirkjugörðunum sem eiga að fá að hvíla í friði.
Friður sé með yður....
Grafreiturinn fái að hvíla í friði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.1.2008 | 13:16
Skondin auglýsing (Fyrir þá sem kunna portúgölsku)
Ég fann þessa auglýsingu á skessuhorn.is undir "atvinna í boði"
Lamber a minha avó.Eu gosto recto.Eu quero fazer amor com una cabra.Para obter mais informacöes para Jóse Carlos Mendes 691xxxx
Ég ætla nú ekki að birta þýðinguna myndirnar eru vísbending.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.1.2008 | 20:45
Óhapp?
Óhapp við þrettándabrennu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2008 | 15:00
Helvíta kötturinn...
Ella færeyska var í kvenfélaginu eins og flestar heldri frúr í bænum.Einu sinni hélt félagið kökubasar eða einhverskonar tertusamkomu.Ella átti að koma með rjómatertu en var heldur sein fyrir.
Þegar hún loksins skilaði sér móð og másandi, galaði hún yfir samkomuna: " Ég þurfti að skreyta tertuna aftur.Helvíta kötturinn var búinn að sleikja allann rjómann af!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.1.2008 | 17:46
Ég vissi það....
Vélmenni slasaði starfsmann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.1.2008 | 17:26
Vinnan göfgar manninn.... er það ekki.
Ég hef komið víða við á starfsævinni.Hef svo sem fengið að heyra að ég tolli hvergi en það er nú orðum aukið.Það er bara svo margt sem ég þarf að prófa.
Einu sinni var ég að vinna á frekar litlum vinnustað ca.20 manns.Við vorum á aldrinum frá 18 ára og til rúmlega sjötugs.Eftirminnilegust eru þau elstu í hópnum td. ein sem var alveg sorakjaftur og gekk oft alveg fram af okkur stelpunum sem þóttumst samt ekki kalla allt ömmu okkar svo var það blessunin hún Lauga sem aldrei talaði illa um nokkurn mann.Hún sagði stundum þegar einhverjar kjaftasögur voru í gangi á kaffistofunni "Já, blessuð manneskjan og við vorum flest "englarnir" hennar Svo var það Ella færeyska og ekki má gleyma gamla.Hann var stór og mikill karl sem tók ótæpilega í nefið en bara aðra nösina og kunni manna best að stála hnífa.Hann sagði að hnífarnir bitu svona vel hjá sér vegna þess að hann væri svo lyginn.Stundum láku tóbakstaumarnir alveg niður á borð þeirri færeysku til mikillar skapraunar. Svo var það Eyvi gamli sem hafði verið verkstjóri einhveratíma fyrir langa löngu en áttaði sig ekki alveg á því að hann var ekki í þeirri stöðu lengur og hagaði sér í samræmi við það.
Meira seinn ég ég nenni.Þetta er þriðja tilraunin en mér hefur ekki enn tekist að blogga það sem af er ári.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 18:27
Brunaútsala ársins!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 11:09
Áramót.
Nú styttist í nýtt ár og þá er auðvitað við hæfi að setjast niður og skrifa áramótapistil. En ég ætla nú að láta þessa áramóta vísu eftir Jakob Jónsson á Varmalæk duga.
Oft hugsa ég um er heilsar árið nýja,
þá horfi ég fram á við og ögn til baka
svo marga synd er láðist mér að drýja
og aðra sem ég þyrfti að endurtaka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2007 | 15:08
Eigum við að ræða þetta eitthvað ??
11 bíða björgunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.12.2007 | 17:03
Útrýmum áfengi.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)